Lög félagsins
Lög
Verkalýðsfélags Grindavíkur
I. KAFLI
NAFN OG HLUTVERK
1. grein Nafn og félagsvæði
Félagið heitir Verkalýðsfélag Grindavíkur. Félagssvæði þess er Grindavíkurkaupstaður. Félagið er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.
2. grein Tilgangur og starfsvið
Tilgangur félagsins er sá að efla og styðja hag félagsmanna. Félagið skal kappkosta að ákveða vinnutíma, kaupgjald, vinnuskilmála, tryggja öryggi við vinnu og vinna að öðrum hagsmunamálum verkafólks með því að skipuleggja innan félagsins allt það verkafólk sem starfar á félagssvæðinu og hafa sér til lífsframfæris vinnu í eftirtöldum og öðrum hliðstæðum starfsgreinum:
a)Við fermingu og affermingu skipa og hvers konar annarra flutningstækja svo og móttöku og afhendingu farms.
b) Við húsbyggingar og efnisflutninga vegna byggingaframkvæmda.
c)Við hafnargerð, vegagerð, skurðgröft, landbúnaðarstörf og efnisflutninga sem tengjast áðurnefndum starfsgreinum.
d) Í þjónustu ríkis og sveitarfélaga.
e)Í heimaþjónustu, á leikskólum, við umönnun á sjúkrahúsum og stofnunum, í þvottahúsum og saumastofum sjúkrastofnana,
f) Við ræstingar, hreinlætisstörf, efnalaugar og þvottahús.
g) Við mötuneytisstörf.
h) Við varðstörf, öryggisvörslu og fjármunaflutninga.
i) Á veitinga- og gististöðum.
j) Við vinnslu og sölu sjávarafurða og landbúnaðarafurða.
k) Í iðnaði og í verksmiðjum svo sem járnsmíði, skipasmíði, blikksmíði (tunnugerð), garðyrkju, byggingar- og þungaiðnaði.
l) Við móttöku og afhendingu vara, þar með taldir bifreiðastjórar.
m) Við olíu-, bensín-, smur-, bón- og ryðvarnarstöðvar og hjólbarðaverkstæði.
n) Við stjórn vöruflutningabifreiða í þjónustu annarra og við stjórn á stórvirkum vinnutækjum, svo sem ýtum, vélskóflum og vélkrönum.
o) Við orkufrekan iðnað, jarðgangnagerð, virkjanir og aðrar stórframkvæmdir sem eru sambærilegar og við hliðstæðar nýjar starfsgreinar.
p) Við hvers konar önnur framleiðslu- og flutningastörf.
3. grein Réttur til inngöngu
Félagið er opið öllu verkafólki, sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Starfa eða eru að hefja störf í einhverri þeirra starfsgreina, er um getur í 2. gr.
b) Eru fullra 16 ára að aldri.
c) Eru hvorki skuldugir né standa í óbættum sökum við félagið eða önnur verkalýðsfélög innan Alþýðusambands Íslands.
Þetta ákvæði er ekki andstætt neinu ákvæði í lögum ASÍ en stenst hins vegar ekki vinnulöggjöfina. Launamaður getur unnið t.d. tvö hálfdagsstörf í ólíkum greinum og átt aðild að tveimur verkalýðsfélögum. Hins vegar geta menn ekki verið fullgildir félagsmenn í tveimur verkalýðsfélögum vegna sama starfs. Það mætti því annars vegar afnema ákvæðið eins og flestir hafa gert – eða bæta við fyrir aftan “ ... v/ sama starfs.”
4. grein Aukaaðild
Heimilt er að taka í félagið sem aukafélaga unglinga innan 16 ára aldurs og aðra sem stunda vinnu sem samningsréttur félagsins nær til á félagsvæði félagsins um stundarsakir
Aukafélagar greiða fullt félagsgjald, hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins, en ekki atkvæðisrétt né kjörgengi. Aukafélagar hafa forgangsrétt til vinnu sem næst fullgildum félögum og njóta allra þeirra kjara og réttinda, sem kjarasamningar eða gildandi kauptaxtar félagsins ákveða.
Þetta er grein af sama meið og athugasemd laganefndar og ætti að missa sig.
5. grein Inntaka nýrra félaga
Sá sem óskar eftir inngöngu í félagið skal afhenda skrifstofu þess skriflega inntökubeiðni. Hafi félagsmaður sem uppfyllir ákvæði 3. greinar greitt félagsgjald til félagsins í 6 mánuði telst hann fullgildur félagi. Ákvörðun um synjun á félagsaðild skal tekin á stjórnarfundi.
Synji stjórnarfundur einhverjum inngöngu í félagið, má skjóta málinu til Starfsgreinasambands Íslands og/eða miðstjórnar Alþýðusambands Íslands en úrskurður stjórnar gildir þar til að annar úrskurður er felldur.
6. grein Úrsögn úr félaginu
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og afhendast skrifstofu félagsins. Sá sem segir sig úr félaginu skal láta félagsskírteini sitt fylgja úrsögninni.
Ef viðkomandi hættir störfum á starfsviði félagsins telst hann að 6 mánuðum liðnum ekki lengur fullgildur félagsmaður.
Félagsmenn halda félagsréttindum meðan þeir gegna trúnaðarstörfum í verkalýðshreyfingunni.
Enginn getur sagt sig úr félaginu meðan viðræður um kjarasamninga, vinnudeila sem snertir kaupgjald eða vinnuskilmála viðkomandi félagsmanna stendur yfir. Einnig er óheimilt að segja sig úr félaginu til þess að taka upp störf félagsmanna í öðru félagi er lagt hefur niður vinnu vegna vinnudeilu.
II. Kafli
RÉTTINDI OG SKYLDUR FÉLAGSMANNA
7. grein Réttindi félagsmanna
a) Auk annarra réttinda njóta fullgildir félagsmenn eftirfarandi réttinda sérstaklega: Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur á félagsfundum og við allsherjaratkvæðagreiðslur ásamt kjörgengi til trúnaðarstarfa innan félagsins og þeirra félagasambanda sem það er aðili að.
b) Réttur til styrkja úr sjóðum félagsins í samræmi við reglur þeirra.
c) Réttur til að vinna þau störf sem kjarasamningar félagsins taka til og eftir þeim kjörum sem samningar ákveða hverju sinni.
d) Réttur til afnota af orlofshúsum félagsins og öðrum sameiginlegum eignum eftir því sem reglugerðir og samþykktir félagsins ákveða hverju sinni.
e) Réttur til að sækja fræðslustarf á vegum félagsins eða samtaka sem það er aðili að.
f) Réttur til aðstoðar vegna vanefnda á kjarasamningum, ráðningarkjörum og til annarrar þjónustu sem félagið veitir.
8. grein Skyldur félagsmanna
a) Að hlíta lögum félagsins, fundarsköpum og fundarsamþykktum og halda í einu og öllu samninga er félagið hefur gert við atvinnurekendur og aðra.
b) Að greiða félagsgjöld.
c) Að veita stjórn félagsins og starfsmönnum þess upplýsingar um kaupgjald og vinnuskilmála hjá þeim atvinnurekendum sem þeir vinna eða hafa unnið hjá.
d) Að gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Þó getur starfandi stjórnarmaður, sem verið hefur 3 ár eða lengur í stjórn félagsins samfellt, skorast undan stjórnarstörfum í jafnlangan tíma. Hafi félagsmaður gegnt trúnaðarstarfi fyrir félagið í 3 ár eða lengur getur hann skorast undan endurkjöri.
e) Að stuðla að því eftir mætti að verkafólk gangi í félagið.
9. grein Félagsgjald
a) Félagsgjald og greiðsluform þess skal ákveðið á aðalfundi fyrir það ár sem yfir stendur og skulu vera tiltekinn hundraðshluti af launum. Tillögu um breytingu á félagsgjaldi skal leggja fram 7 dögum fyrir aðalfund ella sé það óbreytt milli ára. Tillaga um breytingu á félagsgjaldi nær því aðeins samþykki að 2/3 atkvæða séu með henni.
b) Hver sá félagsmaður sem skuldar lögboðin félagsgjöld eða getur ekki sýnt fram á að félagsgjald hafi verið dregið af launum hans fyrir 6 mánuði eða meira nýtur ekki fullra félagsréttinda, svo sem atkvæðisréttar og kjörgengis, né styrkja úr sjóðum, nema sannað sé að veikindi, starfsmenntun, atvinnuleysi, heimilisaðstæður, barnsburðarleyfi eða aðrar gildar ástæður séu orsök þess að hann hafi ekki unnið á starfssvæði félagsins.
c) Félagsmenn 67 ára og eldri sem hættir eru störfum halda félagsréttindum þó þeir greiði ekki félagsgjöld enda hafi þeir verið fullgildir félagsmenn við starfslok.
10. grein Um brot á félagslögum og brottrekstur úr félaginu
Hafi félagsmaður brotið lög, reglugerðir eða fundasamþykktir félagsins, bakað því tjón eða unnið félaginu ógagn með öðrum hætti er stjórn félagsins heimilt að veita viðkomandi félagsmanni áminningu, beita fésektum eða víkja honum úr félaginu ef sakir eru miklar eða brot er ítrekað sem áminnt hefur verið fyrir áður. Einnig getur stjórn svipt viðkomandi rétti til að sinna trúnaðarstörfum. Úrskurði stjórnar má skjóta til félagsfundar.
Ef félagsmaður er sakaður um brot samkvæmt 1. málsgrein skal félagsfundur úrskurða í málinu eftir að hafa gefið stjórn félagsins og viðkomandi einstaklingi tækifæri til þess að tjá sig um málið.
Úrskurði félagsfundar um áminningu, brottrekstur eða fjársektir má vísa til Starfsgreinasambands Íslands og/eða miðstjórnar Alþýðusambands Íslands. Úrskurður félagsfundar gildir þar til annar úrskurður er felldur. Hafi félagsmanni verið vikið úr félaginu á hann ekki afturkvæmt í það nema inntökubeiðni hans sé samþykkt á löglegum félagsfundi.
III. KAFLI
STJÓRN OG TRÚNAÐARMANNARÁÐ
11. grein Skipan stjórnar
Stjórn félagsins skipa 7 menn. Formaður, varaformaður, ritari og 4 meðstjórnendur. Kjörtímabil formanns og varformanns eru tvö ár, en kjörtímabil annarra stjórnarliða er eitt ár.
12. grein Störf stjórnar
Stjórn félagsins hefur á sinni hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda sbr. 17. gr. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði. Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eigum félagsins. Skylt er stjórn félagsins að stuðla að því að allt er varðar sögu félagsins sé sem best varðveitt. Láti félagsmaður af trúnaðarstörfum er hann gegnir er honum skylt að skila af sér öllum gögnum er trúnaðarstarf hans varðar.
13. grein Störf formanns
Formaður félagsins kveður til stjórnarfunda og stjórnar þeim. Formanni er skylt að halda stjórnarfund óski a.m.k. 2 stjórnarmenn eftir því. Formaður undirritar gerðarbækur félagsins og gætir þess að allir stjórnarmenn geri skyldur sína. Hann hefur eftirlit með starfsemi félagsins og eftirlit með því að lögum þess og samþykktum sé fylgt í öllum greinum. Varaformaður gegnir öllum störfum formanns í forföllum hans.
14. grein Störf ritara
Ritari ber ábyrgð á að gerðabækur félagsins séu haldnar og færðar í þær allar fundagerðir og lagabreytingar.
Ritari undirritar gerðabækur félagsins ásamt formanni. Heimilt er að hljóðrita fundi félagsins, en fundargerðir skulu engu að síður skráðar. Ritari ber ásamt formanni ábyrgð á að skjöl félagsins og önnur gögn séu varðveitt með skipulegum hætti.
15. grein Trúnaðarmannaráð
Trúnaðarmannaráð skal vera starfandi í félaginu. Trúnaðarmannaráð hefur vald til að taka ákvörðun um hvenær hefja skuli vinnustöðvun og hvenær þeim skuli aflétt.
Í ráðinu eiga sæti stjórn félagsins og 5 fullgildir félagsmenn sem kosnir eru í ráðið eftir sömu reglum og til sama tíma og stjórn. 3 varamenn skulu kosnir í trúnaðarmannaráðið um leið og aðalmenn eru kosnir.
Formaður félagsins skal vera formaður trúnaðarmannaráðs og ritari félagsins ritari þess.
Formaður kveður trúnaðarmannaráð til funda með þeim hætti er hann telur heppilegast. Skylt er formanni að boða til trúnaðarmannaráðsfundar ef 1/3 hluti trúnaðarmannaráðs óskar þess og tilgreinir fundarefni.
Trúnaðarmannaráðsfundur er löglegur ef meirihluti ráðsmanna mætir, eða alls 7 aðal- og varamenn.
Ákvarðanir um að hefja verkfall eða aflétta því eru löglegar og bindandi fyrir félagið og félagsmenn þess, ef þær hafa verið samþykktar með a.m.k. ¾ hlutum greiddra atkvæða á lögmætum trúnaðarmannaráðsfundi. Formaður getur í nafni félagsstjórnar kallað saman trúnaðarmannaráð stjórninni til aðstoðar, þegar ýmis önnur félagsleg vandamál ber að höndum og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi, og ræður úrslitum í slíkum málum einfaldur meirihluti fundar.
IV. KAFLI
FUNDIR OG STJÓRNARKJÖR
16. grein Félagsfundir
Félagsfundir skulu haldnir þegar þegar félagsstjórn álítu þess þörf eða minnst 20 fullgildir félagsmenn óska þess við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni. Fundir skulu boðaðir með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara með auglýsingum, sem tryggt er að geti náð til félagsmanna. Þó má í sambandi við vinnudeilur og verkfallsboðanir boða fund með skemmri fyrirvara. Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Fundum félagsins skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Ágreiningsatriði um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði. Óski einstaka félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi, er fundarstjóra skylt að verða við þeirri ósk.
17. grein Aðalfundir
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með dagskrá með sjö sólarhringa fyrirvara og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
3. Kosning stjórnar, varastjórnar og trúnaðarmannaráðs, enda fari kosning ekki fram með allsherjaratkvæðagreiðslu
4. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og einn til vara.
5. Lagabreytingar, ef fyrir liggja.
6. Ákvörðun félagsgjalda.
7. Önnur mál.
18. grein Allsherjaratkvæðagreiðslur
Heimilt er að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs og skal tilhögun hennar fara eftir reglugerð ASÍ þar að lútandi. Annars skal kjósa stjórn á aðalfundi. Kjósa skal sérstaklega formann, varaformann og ritara,en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.
V. KAFLI
FJÁRMÁL OG REKSTUR
19. grein Rekstur félagsins
Af tekjum félagsins skal greiða öll útgjöld þess, skatt til Starfsgreinasambands Íslands og ASÍ sem og annan kostnað, er stafar frá samþykktum félagsfunda eða stjórnar. Við meiriháttar ráðstafanir á eignum félagsins þarf samþykki félagsfundar.
20. grein Skoðunarmenn reikninga
Kjörnir skoðunarmenn skulu yfirfara samþykktir og reikninga félagsins fyrir hvert reikningsár sem er almanaksárið og gera athugasemdir ef þörf er á. Skoðunarmenn eru kjörnir á aðalfundi. Auk athugunar hinna félagslegu skoðunnarmanna reikinga er stjórn félagsins skylt að láta löggiltan endurskoðanda endurskoða reikninga og fjárreiður félagsins í lok hvers reikiningsárs.
21. grein Sjóðir félagsins
Sjóðir félagsins eru: Félagssjóður, sjúkrasjóður, orlofsheimilasjóður, vinnudeilusjóður svo og aðrir sjóðir sem stofnaðir kunna verða. Þá á félagið einnig aðild að fræðslusjóðum verkafólks á landsbyggðinni, sem reknir eru sem sjálfstæðar stofnanir.
Allir sjóðir félagsins aðrir en félagssjóður skulu hafa sérstaka reglugerð samþykkta á aðalfundi.Reglugerðum sjóða má aðeins breyta á aðalfundi. reglugerð hvers sjóðs skal tilgreina hlutverk sjóðsins, hverjar tekjur hans skulu vera, hvernig verja skuli fé hans og hvernig honum skuli stjórnað.
Félagssjóður greiðir allan kostnað af starfsemi félagsins.
Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í skuldabréfum, í bönkum eða sparisjóðum.
Tekjur félagsins skiptast milli sjóðanna samkvæmt ákvæðum í reglugerðum þeirra.
VI. KAFLI
UM LAGABREYTINGAR, SAMEININGU FÉLAGA OG FÉLAGSSLIT
22. grein Lagabreytingar
Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði. Einnig er heimilt að breyta lögum á félagsfundi hafi lagabreytingarnar áður verið ræddar á félagsfundi og breytinganna getið í fundarboði.
Til þess að breytingin nái fram að ganga,verður hún að vera samþykkt með 2/3 hluta greiddra atkvæða fullgildra félagsmanna.
Breyting á lögunum koma fyrst til framkvæmda er framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands og miðstjórn ASÍ hafa staðfest þær.
Reglugerðir, sem vitnað er til í lögum þessum, skulu bornar upp til samþykktar á aðalfundi félagsins, og taka gildi hljóti þær samþykki einfalds meirihluta fundarmanna.
23. grein Sameining félaga og félagsslit
Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 allra félagsmanna samþykki það að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Verði samþykkt að leggja félagið niður, skal Alþýðusamband Íslands varðveita eignir þess þar til annað verklýðsfélag er stofnað með sama tilgangi á félagssvæðinu. Fær það félag þá umráð eignanna, að áskildu samþykki miðstjórnar Alþýðusambandsins.
Um sameiningu félagsins við annað verkalýðsfélag, skal fjallað á sama hátt og um lagabreytingar.
Lög félagsins þannig samþykkt á aðalfundi félagsins félagsins þann 20. september 2006.




